26.11 2009

Golfbúðin styrkir Krabbameinsfélagið

Forsvarsmenn Golfbúðarinnar afhentu Krabbameinsfélaginu 300.000 krónur á dögunum sem aflað var með sölu á sérstökum bleikum golfvörum, Pink Ribbon Golf, en 10% af söluandvirði vöruflokksins rennur til styrktar baráttunni gegn brjóstakrabbameini í hverju landi þar sem vörurnar eru seldar.

 Pink Ribbon Golf var stofnað árið 2007 og eru golfvörur fyrirtækisins seldar víða um Evrópu. Verslanir sem taka vörurnar til sölu heita því jafnframt að 10% af söluandvirðinu renni til samtaka í viðkomandi landi sem berjast gegn brjóstakrabbameini. Með þessu vill fyrirtækið hvetja kylfinga heimsins til að leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn þessum algenga sjúkdómi. „Við erum þakklát fyrir  þennan góða stuðning. Það er náttúrulega tilvalið að geta sameinað áhugamál við stuðning á góðu málefni og vonumst við til að sem flestir taki sér þetta til fyrirmyndar,“ segir Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabbameinsfélags Íslands.  

  Hann segir kylfinga góða stuðningsmenn í baráttunni gegn brjóstakrabbameini, eins og sjá megi af þátttöku í Bleika Toppbikarnum, sem fram fór í 5. sinn í sumar.

Myndatexti:
Sigurgísli Skúlason, eigandi Golfbúðarinnar, og Kristín Sigurgísladóttir fjármálastjóri afhenda Guðrúnu Agnarsdóttur afraksturinn af sölu bleiku golflínunnar.

www.krabb.is
www.pinkribbongolf.com









Skipta um leturstærð


Leit