01.12 2009

Jólafundur Krafts

Jólasamkoma Krafts

Krafts félagar,

Njótum tilverunnar saman og gefum okkur notalega samverustund í Iðnó þann 1. desember, kl. 20:00.

Súkkulaði, rjómi og rauðvínsstemning Kraftsfélaga getur ekki klikkað!

Aðgangur er ókeypis, notið því tækifæri til að bjóða vinum og vandamönnum með. Allir gestir eiga kost á að fara heim með vinning úr jólahappdrætti Krafts.

Við bjóðum nýliða sérstaklega velkomna og verður sú nýbreytni að eldri Kraftsfélagar taka á móti nýliðum frá klukkan 19:30-19:45.









Skipta um leturstærð


Leit