Yfir 43.000 slaufur seldust í átaki Krabbameinsfélagsins
Stuðningur almennings og fyrirtækja dýrmætur
Allur ágóði rennur til styrktar leitarstarfi Krabbameinsfélags Íslands
Metár var í sölu bleiku slaufunnar , en alls seldust um 43.000 slaufur í átaki Krabbameinsfélagsins í október. Slaufan var að þessu sinni hönnuð af skartgripahönnuðinum Sif Jakobs og þótti hin mesta prýði jafnframt því að sýna stuðning við góðan málstað. Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands segir fólk kunni að meta þá þjónustu og það starf sem félagið sinni - bæði þeir sem kljást við krabbamein og aðstandendur þeirra. „Þetta er þjónusta sem okkur finnst mikilvægt að sé til staðar.“
„Stuðningur almennings er okkur sérlega mikilvægur, en það er samtakamáttur fólksins í landinu sem hefur náð að gera Krabbameinsfélagið að því sem það er í dag,“ segir Guðrún Agnarsdóttir, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands og þakkar þeim ótalmörgu einstaklingum og fyrirtækjum sem keyptu bleiku slaufuna.
Engin söluþóknun
„Það skiptir miklu máli að krabbamein greinist snemma og leitarstarf Krabbameinsfélagsins á stóran þátt í þeim góða árangri sem við Íslendingar höfum notið í baráttunni við brjóstakrabbamein.
Allur ágóðinn af fjáröflun októbermánaðar rennur til leitarstarfsins, en eins og aðrir hefur Leitarstöð Krabbameinsfélagsins þurft að kljást við niðurskurð sökum efnahagsástandsins. Með dyggum stuðningi almennings mun okkur takast að halda frábæru starfi Leitarstöðvarinnar áfram.“
„Við viljum einnig þakka öllum þeim sem tóku þátt í að gera októbermánuð bleikan og vekja athygli á brjóstakrabbameini en þess má geta að allir þeir sem seldu bleiku slaufuna gerðu það án nokkurrar þóknunar. Krabbameinsfélagið var stofnað af fólkinu í landinu, og starf þess gagnast langflestum Íslendingum – beint eða óbeint, hvort sem þeir þurfa að kljást við krabbamein sjálfir eða að styðja við náinn aðstandanda,“ segir Guðrún að lokum.