27.11 2009 - Föstudagur

Fjölbreytt og árangursríkt starf Ráðgjafarþjónustunnar

Ráðgjafarþjónusta Krabbameinsfélags Íslands er tilraunaverkefni til þriggja ára og á þeim tveimur árum sem liðin eru hefur starfsemin verið í stöðugri þróun og aðsókn aukist jafnt og þétt.

Þjónusta Ráðgjafarþjónustunnar er einstaklingsmiðuð og miðast við að veita sjúklingum og fjölskyldum þeirra stuðning og upplýsingar um úrræði sem til staðar eru í samfélaginu þegar einhver í fjölskyldunni greinist með krabbamein.

Þjónusta í boði

Fastráðnir starfsmenn eru þrír hjúkrunarfræðingar í hlutastörfum og félags-ráðgjafi í fullu starfi en einnig eru sálfræðingur, iðjuþjálfi og prestur leiðbeinendur á námskeiðum Ráðgjafarþjónustunnar. Lögð er áhersla á að vera með fjölbreytta dagskrá sem samanstendur af fræðslu, námskeiðum og viðtölum.

Fræðsla

Fræðslufyrirlestrar eru haldnir annan hvern miðvikudag í hádeginu. Í hádegisfyrirlestrunum hefur verið fjallað um efni sem tengist andlegu og líkamlegu heilbrigði, mataræði og almennri vellíðan. Byrjað er á slökun og síðan er boðið upp á brauð, ost og kaffi eða te.

 Í nóvember mun Margrét Gunnarsdóttir kynna Starfsmenntunarsjóð sem er nýtt úrræði en hlutverk hans er að draga úr líkum á því að launafólk hverfi af vinnumarkaði vegna langvarandi veikinda. Anna Valdimarsdóttir sálfræðingur verður með fyrirlestur um gjörhygli (mindfulness) en gjörhygli er nýlegt afbrigði hugrænnar atferlismeðferðar.

Námskeið

Nú eru í gangi tvö námskeið í Hugrænni atferlismeðferð. Námskeiðið er einu sinni í viku og stendur í sex vikur. Í hugrænu atferlismeðferðinni skoða þátttakendur hugsanir sínar og hvernig þær geta haft slæm áhrif á líðan þeirra. Stefnt er að því að hefja nýtt námskeið í nóvember. Leiðbeinandi er Eggert Birgisson sálfræðingur.

Stefnt er að því að halda tvö matreiðslunámskeið í haust, byggð á bókinni Bragð í baráttunni sem kom út nýlega og fjallar um fæðu sem vinnur gegn vexti krabbameinsæxla. Leiðbeinandi er Unnur Guðrún Pálsdóttir (Lukka). Einnig verður haldið og námskeið í að nota Facebook til fulls. Leiðbeinandi er Þórey Vilhjálms-dóttir. Þessi námskeið eru bæði haldin í boði Krafts. Kraftur hefur styrkt starfsemi Ráðgjafaþjónustunnar vel, bæði með tækjakaupum og einnig með því að taka þátt í að greiða fyrir fræðslu og námskeið.

Á döfinni er að halda námskeið í sjálfstyrkingu og tilfinningagreind í nóvember eða eftir jól. Námskeiðið Sjálfsstyrking er einu sinni í viku og stendur í þrjár vikur. Þátttakendur fá þjálfun í framkomu og raddbeitingu og rætt er um líkams-ímynd. Leiðbeinandi er Gunnjóna Una. Námskeiðið Tilfinningagreind er einu sinni í viku og stendur í þrjár vikur. Unnið er áfram með úrvinnslu tilfinninga. Einnig er fjallað um vandamálalausnir og markmiðssetningu. Leiðbeinandi er Gunnjóna Una.

Séra Bragi Skúlason hefur haldið áfram í haust með fræðslu og umræður fyrir ekkjur og ekkla einu sinni í mánuði. Næsta samvera er fimmtudaginn 12. nóvember næstkomandi. Eftir jól er stefnt að því að vera með námskeið fyrir unglinga sem eru nánir aðstandendur fólks með langvinna sjúkdóma.

Markmiðið með námskeiðunum er að auka vellíðan fólks og hefur fólk almennt verið mjög ánægt með námskeiðin. Þátttaka og námskeiðsgögn eru ókeypis.

Viðtöl og einkatímar

Viðtöl eru miðuð við að veita sálrænan stuðning og áfallahjálp þar sem rætt er um hvaða áhrif greining krabbameins getur haft á einstaklinginn og aðstandendur hans. Þá er boðið upp á sálgæsluviðtöl, lausnamiðuð viðtöl og viðtöl sem byggja á aðferðafræði hugrænnar atferlismeðferðar.

Einnig er boðið upp á einstaklingstíma í djúpslökun þrjá daga í viku og stuðningsviðtöl í framhaldi af slökuninni.

Félagsráðgjafi aðstoðar fólk við að sækja um réttindi í tryggingakerfinu og víðar og hefur tekið saman hagnýtar upplýsingar fyrir krabbameinssjúklinga. Eru þær aðgengilegar á heimasíðu Krabbameinsfélagsins (www.krabb.is/rad). Þar er upplýst um fjárhagsleg úrræði svo sem greiðslur almannatrygginga, áunnin réttindi í stéttarfélögum og hjá lífeyrissjóðum, ásamt félagslegum úrræðum og upplýsingum fyrir fólk sem sækja þarf læknisþjónustu utan heimabyggðar sinnar. Þar má einnig finna upplýsingar sem lúta að endurhæfingu svo sem sjúkra- og iðjuþjálfun eða varðandi stuðningsstarf stuðningshópa Krabbameinsfélagsins.

Allir velkomnir

Góð aðstaða er til fundahalda í Ráðgjafarþjónustunni og eru Stómasamtökin með funda- og skrifstofuaðstöðu þar. Félögum í Stómasamtökunum er velkomið að taka þátt í allri dagskrá Ráðgjafarþjónustunnar. Dagskrá Ráðgjafar-þjónustunnar er auglýst á vef Krabbameinsfélagsins (www.krabb.is) og er auk þess send út vikulega á tölvupóstlista til þeirra sem þess óska.
Opið er virka daga kl. 9:00-16:00 og er þjónustan fólki að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar og skráning á viðburði Ráðgjafarþjónustunnar eru í síma 540 1912 (una@krabb.is) eða í síma 540 1916 (ragnalf@krabb.is).

Grein eftir Gunnjónu Unu Guðmundsdóttur félagsráðgjafa hjá Krabbameinsfélaginu.
Úr Fréttablaði Stómasamtakanna, október 2009.





   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit