31.05 2009 - Sunnudagur

Kristín Björnsdóttir - aldarminning

Hundrað ár eru liðin frá fæðingu Kristínar Björnsdóttur en hún fæddist 1. júní árið 1909.
Krabbameinsfélag Íslands minnist hennar vegna hlutdeildar hennar í baráttunni gegn krabbameini. Árið 1996 var stofnaður sjóður sem fékk nafnið „Sjóður Kristínar Björnsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Sameinuðu þjóðanna“ og var hann stofnaður samkvæmt ósk Kristínar í erfðaskrá og er hann í vörslu Krabbameinsfélagsins. Allt stofnfé sjóðsins er komið frá Kristínu en tilgangur hans er að rannsaka krabbamein í börnum og unglingum og til aðhlynningar krabbameinssjúkum börnum. Sjóðurinn hefur styrkt 27 verkefni frá árinu 1997 og er um að ræða mjög fjölbreytt verkefni sem tengjast tilgangi hans. Dæmi um verkefni sem sjóðurinn hefur styrkt er uppsetning á heitum potti í Rjóðrinu, meðferðarstólar fyrir börn á Barnaspítala Hringins, rannsókn á sýkingum barna með illkynja sjúkdóma og athugun á sálfélagslegum aðstæðum foreldra eftir að barn hefur greinst með krabbamein.

Kristín átti viðburðaríka ævi. Hún fæddist á Litlu-Giljá í Húnavatnssýslu en fluttist átta ára gömul til Blönduóss og gekk þar í Kvennaskólann. Hún starfaði síðan í mörg ár á Landsímastöðinni í Reykjavík, lærði á hið nýja langlínusamband við Ísland í London sem opnað var þegar hún kom að utan. Árið 1937 fluttist hún alfarin utan og dvaldist fyrst í París og síðan á Ítalíu. Þar var hún þegar seinni heimsstyrjöldin braust út og lenti í stríðsfangabúðum fasista og var þar í rúm þrjú ár. Við innrás Bandaríkjamanna losnaði hún úr fangabúðunum og hóf að starfa með þeim, m.a. sem túlkur bandarísku herstjórnarinnar. Á vegum þeirra komst hún til New York í IBM-skólann og starfaði í upphafi hjá því fyrirtæki. Haustið 1946 hóf hún að starfa við gagnaöflun hjá Sameinuðu þjóðunum og starfaði þar í um tvo áratugi. Það kom í hennar hlut að draga íslenska fánann að hún í fyrsta skipti þegar Ísland gerðist aðili að Sameinuðu þjóðunum. Við starfslok fluttist Kristín aftur til Íslands árið 1969 og lést hún 11. október 1994.

Kristín var ógift og barnlaus og arfleiddi Krabbameinsfélag Íslands og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra að stærstum hluta eigna sinna. Eru margir í mikilli þakkarskuld við Kristínu vegna þessara höfðinglegu gjafa. Kristínarsjóður Krabbameinsfélags Íslands, eins og hann er í daglegu tali kallaður, hefur starfað nánast óslitið síðan 1997. Hann stendur styrkum fótum og mun áfram styrkja ýmis verkefni sem tengjast krabbameinssjúkum börnum. Stefnt er að því að halda málþing á haustdögum um krabbamein í börnum til minningar um Kristínu. Í stjórn sjóðsins sitja Guðrún Jónsdóttir bóndi, Hermann Eyjólfsson framkvæmdastjóri og Jakob Jóhannsson læknir.

Fyrir hönd stjórnar,

Jakob Jóhannsson.

Birt í Morgunblaðinu 31. maí 2009.


 






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit