03.04 2009

Skimun bjargar mannslífum

Mars er alþjóðlegur árveknismánuður um ristilkrabbamein. Umræða og fræðsla er mjög brýn því krabbamein í ristli og endaþarmi er þriðja algengasta krabbamein í konum og körlum. Árlega greinast rúmlega 130 manns á Íslandi og um 40% þeirra deyr af þessum sjúkdómi. Hættan á að fá sjúkdóminn eykst með hækkandi aldri og því miður greinist hann oft of seint, þegar lækning er ekki lengur möguleg. Ástæða þess er að algengustu einkenni ristilkrabbameins á byrjunarstigi eru engin einkenni. Þegar einkenni eins og kviðverkir, þyngdartap, breytingar á hægðamynstri eða blóð með hægðum eru komin fram er sjúkdómurinn yfirleitt lengra genginn.

Hægt að koma í veg fyrir myndun krabbameins

Með ristilspeglun er hægt að finna ristilkrabbamein á forstigum, svokallaða sepa, áður en þeir verða illkynja. Þegar separ finnast við ristilspeglun og eru fjarlægðir ná þeir því aldrei að verða að illkynja æxli og þannig er hægt að koma í veg fyrir myndun krabbameins. Með ristilspeglun er einnig hægt að greina ristilkrabbamein á byrjunarstigum, sem er þá hægt að fjarlægja fullkomlega með skurðaðgerð og lækna sjúkdóminn. Því er það gríðarlega mikilvægt að komið verði af stað formlegu skimunarprógrammi á Íslandi, þar sem öllum sem náð hafa 50 ára aldri er boðið upp á skimun, eða leit, að ristilkrabbameini. Alþingi hefur samþykkt ályktun þess efnis og nú er boltinn hjá heilbrigðisráðuneytinu. Erlendar rannsóknir hafa sýnt hvað eftir annað að skimun sparar peninga, því meðferð sjúkdómsins er dýr. Þar til slíkt skipulag er komið í gang ættu allir að gefa sjálfum sér og ástvinum sínum ristilspeglun í fimmtugsafmælisgjöf.

Nýjungar í meðferð

Þegar krabbamein hefur myndast í ristli eða endaþarmi er eina læknandi meðferðin að fjarlægja það með skurðaðgerð. Þessar aðgerðir er nú oft hægt að gera með kviðsjá, þar sem gerð eru lítil göt á kviðinn og unnið eftir mynd á sjónvarpsskjá. Þessi tegund aðgerða flýtir bata og skilur ekki eftir sig stór ör. Það hafa einnig orðið miklar framfarir á sviði lyfjameðferðar, sem er gefin sjúklingum þar sem krabbameinið hefur dreift sér til eitla eða í önnur líffæri. Fleiri lyf eru í boði en áður og þau þolast betur þannig að hægt er að sníða meðferðina meira að þörfum hvers og eins. Einnig er hægt að nota geislun á krabbamein í endaþarmi, bæði fyrir aðgerð til minnka æxlið og í líknandi tilgangi til að draga úr einkennum.

Fræðsla mikilvæg

Krabbamein í ristli og endaþarmi er algengt og tíðnin virðist fara vaxandi í okkar heimshluta. Þó er full ástæða til bjartsýni, því með skimun og bættri meðferð er hægt að draga verulega úr dánartíðni af völdum þessa sjúkdóms. Fræðsla til almennings, stjórnmálamanna og heilbrigðisstétta er forsendan fyrir því að hægt sé að ná þeim árangri.  Ég hvet alla sem einn að vera vakandi yfir eigin heilsu.

Elsa Björk Valsdóttir er skurðlæknir á Landspítalanum.









Skipta um leturstærð


Leit