03.04 2009 - Föstudagur

Sextíu ára hugsjónastarf

Krabbameinsfélag Reykjavíkur var stofnað 8. mars 1949 af framsýnum áhugamönnum. Þar má nefna Alfreð Gíslason lækni, Gísla Sigurbjörnsson forstjóra og Niels Dungal prófessor sem varð fyrsti formaður félagsins. Á þeim tíma var krabbamein í sókn hérlendis sem annars staðar og læknar sem margir hverjir voru nýkomnir heim úr sérfræðinámi báru með sér nýja þekkingu og hugmyndir. Stofnfundurinn var haldinn í Hátíðarsal Háskólans, um sjötíu manns sóttu fundinn en stofnfélagar voru á þriðja hundrað.

Starfsemi félagsins varð strax í byrjun fjölbreytt en áhersla var lögð á fræðslustarf því mikilvægt þótti að auka þekkingu manna á sjúkdómnum. Tilgangur félagsins hefur frá upphafi verið hinn sami: Að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Í lögunum er skilgreint hvernig ná skuli þessum tilgangi;
• fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir,
• stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins,
• veita krabbameinssjúklingum stuðning og
• stuðla að krabbameinsrannsóknum hér á landi.

Árið 1957 kom félagið á fót krabbameinsleitarstöð fyrir almenning til að greina krabbamein í byrjunarstigi en Krabbameinsfélag Ísland tók við rekstri hennar ári síðar. Krabbameinsfélagi Reykjavíkur var falið árið 1963 að annast stóran hluta fræðslustarfsemi krabbameinssamtakanna og árið 1976 hóf félagið víðtæka herferð gegn reykingum. Tóbaksforvarnir hafa verið eitt stærsta baráttumál félagsins og undir forystu Þorvarðar Örnólfssonar fyrrverandi framkvæmdastjóra félagsins náðist mikill árangur. Fram til ársins 2004 sinnti félagið tóbaksvarnafræðslu í skólum landsins en þá fluttust tóbaksvarnir til Lýðheilsustöðar. Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur þó haldið áfram að hjálpa fólki að hætta að reykja og hefur haldið um 200 námskeið bæði fyrir almenning og fyrirtæki á öllu landinu. Félagssvæðið nær yfir Kópavog, Seltjarnarnes, Mosfellsbæ og Reykjavík.

Krabbameinsfélag Reykjavíkur átti frumkvæði að Happdrætti Krabbameinsfélagsins. Fyrsta bílahappdrættinu var hleypt af stokkunum árið 1955. Félagið hefur séð um rekstur happdrættisins, lengst af fyrir hönd krabbameinssamtakanna í landinu. Segja má að fræðsla um krabbamein, krabbameinsvarnir og útgáfustarf hafi byggst að langmestu leyti á happdrættisfé og má segja að happdrættið eigi sinn þátt í þeim mikla árangri sem náðst hefur í tóbaksvörnum síðustu áratugi.

Einnig hafa tekjur af happdrættinu verið nýttar til stuðnings við sjúklinga og aðstandendur. Má þar nefna námskeiðin "Að lifa með krabbamein" sem félagið hefur haldið í samstarfi við Landspítalann frá árinu 1999 og stofnun stuðningshópanna Góðra hálsa, sem er stuðningshópur karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og Stuðningshóps kvenna með krabbamein í eggjastokkum. Félagið vinnur einnig með öðrum stuðningshópum Krabbameinsfélagsins.

Í tilefni af afmælinu ætlar félagið ásamt Krabbameinsfélagi Hafnarfjarðar sem á 60 ára afmæli 10. apríl nk. að leggja áherslu á að fræða almenning um ristilkrabbamein en mars er alþjóðlegur árveknismánuður um það mein. Yfirskrift átaksins er "Forvörn er fyrirhyggja".

Nanna Friðriksdóttir hjúkrunarfræðingur er formaður og Guðlaug Birna Guðjónsdóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur.






   

Senda


Tungumál


Skipta um leturstærð


Leit