17.03 2009

Hollusta gegn krabbameini

Samband er milli þeirra fæðutegunda sem við neytum og áhættunnar á því að fá hinar ýmsu tegundir af krabbameini. Við getum nýtt okkur þessa vitneskju um samband fæðu og krabbameins til að gera mikilvægar breytingar á lífsstíl og þar með minnka líkurnar á því að við fáum krabbamein.

Einkenni á fæðu okkar Vesturlandabúa er of mikil neysla á sykri, fitu og rauðu kjöti en of lítið af ávöxtum, grænmeti og trefjum. Mælt er með jafnvægi í neyslu þessara fæðutegunda auk þess að forðast óæskilegar matvörur eins og reyktan og mikið saltaðan mat, unnar kjötvörur, mikið af rauðu kjöti og áfengi í óhófi.

Richard Béliveau og Denis Gingras hafa lagt áherslu á rannsóknir á fæðutegundum sem hefta myndun, vöxt og viðgang krabbameina. Innan skamms kemur út í íslenskri þýðingu bók þeirra „Eldað úr mat sem vinnur gegn krabbameini“ (e. Cooking with foods that fight cancer).

Í bók sinni „Matur sem vinnur gegn krabbameini“ (e. Foods that fight cancer) telja þeir upp 5 lífsstílsbreytingar sem vernda gegn krabbameini:

• Að hætta að reykja. Einn þriðji krabbameina má beint rekja til tóbaksreykinga og því augljóst að áhrifaríkasta leiðin til að forðast krabbamein er að hætta að reykja.

• Að minnka fjölda hitaeininga í fæðunni. Forðast að borða tilbúnar og unnar matvörur hvort heldur sem skyndibita eða aðalmáltíð. Slíkar matvörur innihalda oft of mikið af sykri, óæskilegri fitu og salti og minna af næringarefnum en fersk matvæli. Auk þess er mun auðveldara að hafa stjórn á gæðum og magni hinna ýmissa innihaldsefna matarins ef hann er matreiddur úr ferskum matvælum. Einföld leið til að minnka magn hitaeininga er að borða mat skyndibita, snakk og gosdrykki eingöngu í undantekningartilvikum. Mælt er með að velja helst ólífuolíu sem fitu í matargerð.

• Að minnka neyslu á rauðu kjöti. Mikil neysla á rauðu kjöti, nautakjöti, lambi og svínakjöti getur aukið tíðni á ristilkrabbameini. Að auki inniheldur það fitu sem gefur aukið magn af hitaeiningum sem getur stuðlað að ofþyngd. Mælt er með mögru kjöti eins og kjúklingi og fiski og belgjurtum til að mæta þörf fyrir eggjahvítuefni.

• Að forðast mat sem inniheldur krabbameinsvaldandi efni. Þar er bent á reykt matvæli og önnur matvæli sem innihalda efni sem verja þau gegn skemmdum eins og nítríð (beikon, ýmis konar pylsur, skinku). Í efnaskiptum líkamans breytast nítríð í efni sem talin eru valda krabbameini. Einnig er ráðlagt að minnka neyslu á mat elduðum yfir loga. Í fitu sem lekur af kjötinu og kviknar í myndast eiturefni (aromatic hydrocarbons) sem setjast á kjötið og geta verið krabbameinsvaldandi. Önnur krabbameinsvaldandi efni (heterocyclic amines) geta myndast þegar dýrafita er elduð við háan hita.

• Að hreyfa sig reglulega. Nýlegar niðurstöður benda til sambands milli hreyfingar og minni hættu á vissum tegundum krabbameins eins og ristilkrabbameini og brjóstakrabbameini. Regluleg hreyfing minnkar einnig offitu sem eykur hættuna á krabbameini. Það þarf ekki að vera svo flókið að gera hreyfingu að ánægjulegum lífsstíl, reyndu til að mynda að ganga eins mikið og oft og þú getur yfir daginn.

 

Bókin Foods that fight cancer mælir með neyslu eftirfarandi:
Rósakáli, spergilkáli, blómkáli, grænkáli, hvítlauk, lauk, skalottulauk, spínati, vatnakarsa, soja, möluðu hörfræi, tómatpasta, túrmerik, svörtum pipar, bláberjum, brómberjum, hindberjum, rauðberjum (týtuberjum), vínberjum, dökku súkkulaði, sítrussafa, grænu tei.

Átta holl ráð sem geta dregið úr hættunni á því að fá krabbamein: Fengið úr skýrslu Alþjóða krabbameinssjóðsins og Bandarísku krabbameinsrannsóknarstofnunarinnar frá 2007 (Food, Nutrition, Physical activity and the prevention of cancer: a Global Perspective):

1. Vertu nálægt kjörþyngd
2. Stundaðu líkamsrækt daglega
3. Forðastu orkuríkt fæði og sykraða drykkjarvöru
4. Neyttu aðallega jurtafæðu
5. Takmarkaðu neyslu á rauðu kjöti og sneyddu hjá unnum kjötvörum
6. Takmarkaðu neyslu alkohóls
7. Takmarkaðu neyslu á salti
8. Markmiðið er að fullnægja næringarþörf einvörðungu með matvælum.

Í skýrslunni eru karlmenn hvattir til að fylgja ráðleggingum um að takmarka neyslu á mjólkurafurðum við tvo skammta á dag. Mikil neysla á kalkríkri fæðu getur aukið líkur á myndun blöðruhálskirtilskrabbameins.

Ragnheiður er hjúkrunarfræðingur hjá Ráðgjafarþjónustu Krabbameinsfélagsins.










Skipta um leturstærð


Leit