Á alþjóðlega reykleysisdeginum 31. maí sl. voru skilaboð Alþjóðaheilbrigðismálastofunarinnar þau að allt yrði að vinna til að koma í veg fyrir að börn og unglingar byrjuðu að reykja hvar sem er í heiminum. Nú eru í heiminum um 1.8 milljarður ungs fólks á aldrinum 10-24 ára. Tóbaksiðnaðurinn vinnur markvisst að því að fá þennan hóp til að ánetjast tóbaki. Ungmenni sem byrjar að reykja setur sig um leið í áhættu á að stytta líf sitt um 15 ár að meðaltali.
Meira en hálf öld er síðan vísindamenn staðfestu að tóbaksreykingar væru hættulegar heilsunni. Á síðustu 20-30 árum hafa þeir jafnframt sannað að fólk deyr ekki bara af völdum eigin reykinga heldur líka vegna reykinga annarra. Óbeinar reykingar geta orsakað sömu sjúkdóma hjá þeim sem ekki reykja og hjá þeim sem reykja, þó áhættan sé minni. Óbeinar reykingar geta valdið bæði hjarta- og æðasjúkdómum sem og krabbameini.
Þessi vissa og þekking hefur leitt af sér margar lagasetningar og reglugerðir um allan heim. Ísland var lengi vel í fararbroddi við setningu takmarkana sem miðuðu að því að draga úr tóbaksreykingum. Það mikilvæga skref í þessa átt sem Íslendingar tóku 1. júní 2007 þegar reykingar voru bannaðar á öllum veitinga- og skemmtistöðum var baráttumál marga og kannski ekki síst íslensku krabbameinssamstakanna sem hafa haft tóbaksvarnir sem eitt af sínum forgangsverkefnum í marga áratugi. Um 40 lönd og ríki hafa þegar innleitt svipað bann og Íslendingar. Mörg þeirra hafa getað mælt minnkun í sölu tóbaks og að færri ungmenni sem og fullorðnir sem reykja. Það er mikill sigur.
Það er réttur hvers og eins að anda að sér lofti án þess að það sé mengað tóbaksreyk. Reyklaust umhverfi hjálpar reykingafólki að minnka reykingar sínar og jafnvel hætta alveg. Einnig hjálpar það til við að hindra að börn og ungt fólk byrji að reykja. Það eitt er eitthvað sem við öll ættum að hafa að markmiði – komum í veg fyrir að börn og unglingar byrji að reykja.
Foreldrar eru sérstaklega minntir á að öll börn þurfa að njóta verndar frá óbeinum reykingum í bíl, heima fyrir eða á öðrum stöðum.
Úr Áhrifum, maí 2008.
Guðlaug er framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags Reykjavíkur og á sæti í Tóbaksvarnaráði.