Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja. Næsta námskeið hefst mánduaginn 21. september 2009 kl. 17. Þátttakendur hittast sex sinnum á fimm vikna tímabili, að námskeiði loknu er þátttakendum fylgt eftir.
Á námskeiðinu fá þátttakendur fræðslu og ráðgjöf til að hætta að reykja ásamt stuðning til að takast á við reyklausa framtíð. Leiðbeinandi er Ingibjörg Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur. Námskeiðið kostar 13.600 kr. (sem jafngildir því að reykja pakka á dag í 16 daga, þegar pakkinn kostar 850 kr). Öryrkjar, eldri borgarar og hjón fá 10% afslátt. Hægt er að skrá sig á reykleysi@krabb.is eða í síma 540 1900. Fagleg hjálp bætir árangur.